Hlutlæg streitumæling og seigluþjálfun fyrir vinnustaði

Streita er lífeðlisleg. Þess vegna er hún mælanleg.

Við komum á vinnustaðinn í einn dag og mælum viðbrögð starfsfólks við streitu með brjóstbelti. Hver þátttakandi fær sína skýrslu, þið fáið nafnlausa hópmynd og vinnustofu. Svo þjálfum við hópinn og mælum aftur, svo þið sjáið hvort streituþolið jókst.

Við höfum samband innan tveggja virkra daga. Engin skuldbinding. Eða . Netfangið er aðeins notað til að svara þér, sjá persónuvernd.

  • Brjóstbelti með ECG-nákvæmni
  • Á staðnum, á einum degi
  • Hópmynd, aldrei færri en fimm
  • Ekki lækningatæki
Mæling · sýnidæmi Í gangi
RR-bil847ms
Hjartsláttur71/mín
FasiBaseline
Öndunarþjálfun · 6 á mín Andaðu inn Svona er heimaþjálfunin í appinu.
1 dagurá vinnustaðnum fyrir allan hópinn
< 60 míná mann í mælingu
6 til 8 vikurþjálfun áður en mælt er aftur
≥ 5í hverri hópmynd, aldrei færri

01Varan

Mælingardagur á vinnustaðnum, með skýrslum og vinnustofu

Þetta er það sem þið kaupið fyrst. Einn dagur hjá ykkur, fjórar afhendingar. Allt annað byggir ofan á hann.

  1. 08:30Uppsetning
  2. 09:00 til 15:00Mælingar, um hálftími á mann
  3. 15:30Vinnustofa, 2 klst
  4. + 10 dagarSkýrslur og skilafundur
Mælingarlota · 09:40 Þátttakandi 14 af 24
RR-bil812ms
Hjartsláttur74/mín
FasiHvíld eftir álag
EinstaklingsskýrslaAðeins þú

Viðbrögð þín við álagi og streituþol þitt í dag

Ráðleggingar fyrir þig
Á mannamáli · engin viðmiðunarmörk · þín gögn
Hópskýrsla≥ 5
Dreifing innan hópsins
24 þátttakendur · engin einstaklingsgildi
15:30 · Vinnustofa Hópurinn les eigin niðurstöður og lærir fyrstu æfingarnar
  • 01

    Mælingardagur á staðnum

    Við komum með brjóstbelti og mælum hvern þátttakanda í hvíld og undir stuttu, stöðluðu álagi. Um hálftími á mann, 20 til 25 manns á dag, í kringum ykkar vaktir og fundi.

  • 02

    Einstaklingsskýrsla

    Hver þátttakandi fær sína skýrslu á mannamáli, fyrst og einn, með ráðleggingum um hvað hann getur gert sjálfur.

  • 03

    Hópskýrsla, aldrei færri en fimm

    Nafnlaus hópmynd til ykkar með túlkun sérfræðings og ráðleggingum fyrir hópinn. Engin einstaklingsgildi, engin nöfn.

  • 04

    Vinnustofa og skilafundur

    Tveggja tíma vinnustofa þar sem hópurinn lærir að lesa eigin niðurstöður og fyrstu öndunaræfingar. Skilafundur með ykkur um næstu skref.

StiginnFjögur tilboð

Og ef þið viljið sjá breytinguna

Tilboðin byggja hvert á öðru en hvert þeirra má kaupa eitt og sér. Verð miðast við fjölda þátttakenda.

  1. Byrjunin

    Fyrirlestur

    60 til 90 mínútur fyrir allt starfsfólk um streitu, streituþol og hvernig líkaminn vinnur.

  2. Sönnunin

    Prógramm

    Sex til átta vikna þjálfun í appi, seinni vinnustofa og endurmæling með fyrir/eftir-skýrslum.

  3. Allt árið

    Áskrift

    App allt árið, fjórir mælingardagar, uppfærð hópmynd eftir hvern og fyrirlestur árlega.

Fyrir vinnustaði með 30 til 150 manns, opinbera aðila og álagsgreinar.

02Aðferðin

Mælt. Þjálfað. Mælt aftur.

Mælingardagur er byrjun, ekki lok. Hópurinn sér sjálfur hvort þjálfunin skilaði sér, af því að við mælum aftur með sama prótókolli.

  1. 01

    Mælt

    Við komum á vinnustaðinn í einn dag. Hver þátttakandi er mældur í hvíld og undir stuttu, stöðluðu álagi með brjóstbelti sem skráir hjartsláttinn með ECG-nákvæmni. Innan við klukkustund á mann, 20 til 25 manns á dag.

    Þið fáið einstaklingsskýrslu til hvers þátttakanda, nafnlausa hópskýrslu og vinnustofu.

  2. 02

    Þjálfað

    Vinnustofa á staðnum þar sem hópurinn lærir að lesa eigin niðurstöður. Síðan sex til átta vikur af öndunar- og biofeedback-æfingum í appi með eftirfylgni, og seinni vinnustofa.

    Þátttakandi fær daglegar æfingar sem passa við eigin niðurstöðu og sér eigin framvindu.

  3. 03

    Mælt aftur

    Sama prótókoll, sami tími dags. Hver þátttakandi sér eigin breytingu frá baseline. Fyrirtækið fær nafnlausa hópmynd af því hvort streituþol hópsins jókst.

    Þið fáið fyrir/eftir-hópskýrslu sem kemst fyrir á einni glæru.

MælingardagurÞátttakandi 14 af 24
BaselineViðbragðsprófHvíld eftir álag
  • Brjóstbelti sett á, gæði merkis athuguð
  • Fimm mínútur í hvíld, augu opin
  • Stutt staðlað verkefni, svo hvíld aftur
Vika 3 af 8Dagur 17

Andaðu inn

Öndunaræfing · 5 mín

Þín framvinda
Hópskýrsla · fyrir og eftirsýnidæmi
Fyrsta mæling Endurmæling

Dreifing streituþols í hópnum, fyrir og eftir þjálfun. Hver þátttakandi sér sína eigin breytingu; fyrirtækið sér aðeins hópinn.

Hvert skref stendur eitt og sér. Þið getið byrjað á fyrirlestri eða farið beint í mælingardag.

03Hópskýrslan

Það sem fyrirtækið fær. Og ekkert annað.

Hópskýrslan er mynd af hópnum sem stjórnendur geta rætt og starfsfólk getur treyst. Hún er kynnt hópnum sjálfum fyrst, svo afhent tengilið sem PDF.

  • Aldrei færri en fimm. Engin samtala, meðaltal eða dreifing er sýnd fyrir færri en fimm manns. Þegar hópur er of lítill stendur „of fáir þátttakendur til að sýna“.
  • Engin einstaklingsgildi. Engin nöfn, engin röðun, engir listar yfir hverjir mættu. Við staðfestum aldrei hvort tiltekin manneskja var mæld.
  • Túlkun sérfræðings. Hvað hópmyndin segir, hvað hún segir ekki, og ráðleggingar fyrir hópinn. Ekki fyrir einstaklinga.
Hópskýrsla · sýnidæmi

Vinnustaður A · 24 þátttakendur

≥ 5
Dreifing baseline innan hópsins
Viðbrögð við álagi
Hvíld eftir álag
Túlkun sérfræðings
Engar einstaklingstölurPDF með vatnsmerkiKynnt hópnum fyrst

04Traust

Hver sér hvað

Þetta er ekki smáatriði. Það er ástæðan fyrir því að starfsfólk tekur þátt.

Þú

Þátttakandinn

Sínar eigin niðurstöður, fyrst og einn. Getur hætt hvenær sem er, líka í miðri mælingu, og látið eyða gögnunum sínum.

Þið

Fyrirtækið

Nafnlausa hópmynd, aldrei fyrir færri en fimm manns. Engin nöfn, engar einstaklingstölur, enginn listi yfir hverjir tóku þátt.

Aðrir

Enginn annar

Við seljum ekki gögn og afhendum þau engum. Gögnin eru geymd innan Evrópska efnahagssvæðisins og þátttakandi getur fengið afrit af öllu sem við geymum um hann.

„Niðurstöður eru aldrei notaðar í starfsmannamálum. Það stendur í samningnum.“

Traustsskjal á einni síðu fylgir hverju tilboði, svo starfsfólk og trúnaðarmenn geti lesið reglurnar áður en þau ákveða sig.
Traustsskjal · ein síðaFylgir tilboði
  • Þú sérð þínar eigin tölur, fyrst og ein
  • Yfirmaður sér aldrei þínar tölur
  • Fyrirtækið sér hópmynd, aldrei færri en fimm
  • Niðurstöður eru aldrei notaðar í starfsmannamálum
  • Þú getur hætt hvenær sem er og látið eyða gögnunum
  • Gögnin eru geymd innan EES og aldrei seld

05Vísindin

Það sem líkaminn segir milli hjartslaga

Hjartsláttarbreytileiki, HRV, er breytileikinn í tímanum milli hjartslaga. Hann er viðurkenndur mælikvarði á hvernig ósjálfráða taugakerfið bregst við álagi og hvílist.

  • 01

    Mælt með ECG-nákvæmni

    Brjóstbelti skráir hjartsláttinn sjálfan. Tíminn milli slaga er mældur í millisekúndum.

  • 02

    Sama prótókoll fyrir alla

    Hvíld, stutt staðlað álag, hvíld eftir álag. Sömu aðstæður fyrir allan hópinn og sami tími dags við endurmælingu.

  • 03

    Gagnsæir útreikningar

    Niðurstöður eru reiknaðar með skráðum formúlum úr HRV og sérfræðingur túlkar þær í samhengi. Hver þátttakandi er borinn saman við eigið baseline, ekki við aðra.

  • 04

    Þróað af sérfræðingi

    Aðferðin er þróuð af doktor í taugasálfræði með sérsvið í hjartsláttarbreytileika og hefur verið prófuð með hópum.

06Um okkur

Tvö, með mælitæki í bakpoka

Íslenskt fyrirtæki. Við mætum á vinnustaðinn, tölum við fólkið og skiljum vinnustaðinn.

Sigrún Þóra Sveinsdóttir

Doktor í taugasálfræði · sérsvið hjartsláttarbreytileiki

Þróaði aðferðina. Mælir og þjálfar hópa og heldur fyrirlestra á vinnustöðum um streitu og streituþol.

Stefnir Húni Kristjánsson

Verkfræðingur · hugbúnaður og rekstur

Byggir appið og gagnakerfið. Sér um rekstur og persónuvernd, og að farið sé með gögn þátttakenda eins og við lofum.

07Spurningar

Það sem fólk spyr fyrst

Heiðarleg svör. Þar sem svarið er „við vitum það ekki enn“ segjum við það.

Sér yfirmaður minn mín gögn?

Nei. Þú sérð þínar niðurstöður, fyrst og ein. Fyrirtækið fær nafnlausa hópmynd og aldrei fyrir færri en fimm manns, svo ekki er hægt að reikna út einstaklinga. Við afhendum aldrei einstaklingsgögn til vinnuveitanda, sama hvað er beðið um, og það stendur í samningnum. Þú getur hætt hvenær sem er og látið eyða gögnunum þínum.

Er þetta vísindalegt?

Hjartsláttarbreytileiki er viðurkenndur mælikvarði á virkni ósjálfráða taugakerfisins og hefur verið rannsakaður í áratugi. Við notum ECG-brjóstbelti og staðlað prótókoll sem er eins fyrir alla. Aðferðin er hönnuð af doktor í taugasálfræði með sérsvið í HRV. Það sem við höfum ekki enn er birt rannsókn á okkar eigin prótókolli; við höfum prófað hann með hópum og erum með áætlun um sannprófun. Við segjum ekki meira en við getum staðið við.

Hvað tekur þetta mikinn tíma frá starfsfólki?

Mælingin tekur um hálftíma á mann og við komum til ykkar. Vinnustofan er tvær klukkustundir. Heimaþjálfun í prógrammi er nokkrar mínútur á dag og fólk ræður hvenær. Við skipuleggjum mælingardag í kringum ykkar vaktir eða fundi.

Er þetta lækningatæki? Þarf þetta leyfi?

Nei. Þjónustan er fyrir vellíðan, seiglu og streituþol. Við greinum ekki, meðhöndlum ekki og komum ekki í veg fyrir sjúkdóma, og við gefum engin klínísk viðmiðunarmörk. Brjóstbeltið sem við notum er neytendavara. Ef þátttakandi þarf heilbrigðisþjónustu vísum við á hana; við erum ekki hún.

Hvað ef niðurstöðurnar eru slæmar?

Hópmyndin er staða, ekki dómur. Ef hún sýnir mikið álag í hópi þá vitið þið það núna, á meðan hægt er að gera eitthvað. Þá er prógrammið og endurmælingin leiðin til að sýna stjórn og starfsfólki að þið brugðust við og hvað gerðist. Við förum yfir niðurstöðuna með ykkur áður en hún fer lengra, og hópskýrslan fer aldrei út úr húsi frá okkur.

Hvað ef einhver verður hræddur við eigin niðurstöðu?

Einstaklingsskýrslan er skrifuð á mannamáli og sérfræðingur fer yfir hana með hverjum sem vill. Við segjum aldrei að einhver sé veikur; við segjum hvernig líkaminn brást við í mælingunni og hvað hægt er að gera. Ef einhver er í vanlíðan sem er utan okkar sviðs vísum við á heilsugæslu eða 1717, og höfum skrifað ferli fyrir það.

Þið eruð bara tvö. Hvað ef eitthvað kemur upp á?

Rétt, við erum lítið fyrirtæki. Aðferðin er skjalfest skref fyrir skref svo annar sérfræðingur geti afhent hana, og við erum að byggja upp þjálfun fyrir fleiri. Ef mælingardagur þarf að færast, færum við hann; gögnin ykkar og skýrslur eru óháð einni manneskju.

Getum við bara keypt fyrirlestur?

Já. Fyrirlesturinn stendur einn og sér og er oft góð byrjun. Ef áhugi vaknar í hópnum er mælingardagur næsta skref, en það er ekki skilyrði.

08Fyrir einstaklinga

Þín eigin viðbrögð við streitu, og hvað þú getur gert við því

Mæling, viðtal við sérfræðing og prógramm sem sýnir þér breytinguna. Við stefnum á að opna aðstöðu fyrir einstaklinga á seinni hluta 2027. Skráðu þig á áhugalista og þú heyrir fyrst.

  1. Mæling
  2. Viðtal
  3. Prógramm
  4. Endurmæling

Netfangið er aðeins notað til að láta þig vita þegar aðstaðan opnar, sjá persónuvernd.

09Hafa samband

Byrjum á fyrirlestri

Sigrún heldur 60 til 90 mínútna fyrirlestur fyrir starfsfólkið ykkar um streitu, streituþol og hvernig líkaminn vinnur. Í lokin sýnum við hvernig mælingardagur gengur fyrir sig. Þið ráðið hvort þið haldið áfram.

  1. 1
    Þið sendið nafn og netfangTekur tíu sekúndur.
  2. 2
    Við höfum sambandInnan tveggja virkra daga, stutt samtal um hópinn ykkar.
  3. 3
    Fyrirlestur eða mælingardagur bókaðurVið skipuleggjum í kringum ykkar dagatal.
Pilot 2027

Við tökum þrjá vinnustaði inn á sérkjörum gegn endurmælingu og nafnlausri dæmisögu.

Eða skrifið beint: info@waveresilience.com

Tveir reitir og einn smellur. Við tökum restina í stuttu samtali.

Hvað hentar ykkur? (valfrjálst)
Bæta við vinnustað eða skilaboðum

Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að svara fyrirspurninni, sjá persónuvernd.