Beint í efni
WaveResilience Til baka á forsíðu

PersónuverndVefur og fyrirspurnir

Hvernig við förum með upplýsingar um þig á þessum vef

Útgáfa 0.1, drög · 2026-10-14 · Gildir um vefinn og fyrirspurnir sem berast um hann

Í stuttu máli. Þessi vefur setur engar vefkökur og rekur þig ekki. Allt sem síðan sækir kemur frá okkar eigin þjóni innan EES. Ef þú sendir okkur fyrirspurn notum við upplýsingarnar aðeins til að svara þér, og við seljum þær aldrei.

1. Hver ber ábyrgð

Ábyrgðaraðili er PROENCY ehf., sem rekur WaveResilience (vinnuheiti). Kennitala [kennitala], [heimilisfang, póstnúmer og staður]. Netfang: info@waveresilience.com. Tengiliður persónuverndarmála er Stefnir Húni Kristjánsson.

2. Engar vefkökur, engin rakning

Síðan setur engar vefkökur, hvorki eigin né frá þriðja aðila, og geymir ekkert í vafranum þínum. Hér er engin umferðarmæling, engir samfélagsmiðlahnappar og engar auglýsingar. Letur og forritasöfn eru hýst á okkar eigin þjóni, svo vafrinn þinn sendir engar beiðnir til Google, Cloudflare eða annarra þriðju aðila þegar þú skoðar síðuna. Þess vegna biðjum við ekki um samþykki fyrir vefkökum: það er ekkert að samþykkja.

3. Það sem skráist þegar þú heimsækir síðuna

Síðan er hýst hjá Google Cloud á svæðinu europe-north1 í Hamina í Finnlandi. Eins og hver vefþjónn skráir hýsingin hverja beiðni í aðgangsskrá: IP-tölu, tímasetningu, slóðina sem beðið var um og tegund vafra. Við notum þessar skrár aðeins til að halda síðunni gangandi og öruggri, til dæmis til að sjá hvort hún liggur niðri eða verður fyrir árás.

TilgangurRekstur og öryggi vefsins
LagagrundvöllurLögmætir hagsmunir, f-liður 1. mgr. 6. gr. persónuverndarreglugerðarinnar (GDPR) og laga nr. 90/2018
Varðveisla30 dagar, síðan er skránum eytt sjálfkrafa
VinnsluaðiliGoogle Cloud EMEA Limited samkvæmt vinnslusamningi Google Cloud. Skrárnar eru geymdar innan EES.

4. Þegar þú sendir fyrirspurn eða skráir þig á áhugalista

Eyðublöðin á síðunni biðja um netfang og, eftir því hvað þú velur, nafn, vinnustað, fjölda starfsfólks, hvað þú hefur áhuga á og skilaboð. Ekkert af þessu eru heilsufarsupplýsingar, og við biðjum þig aldrei um slíkar upplýsingar á vefnum.

Þegar þú smellir á senda opnast tölvupóstur í þínu eigin póstforriti með upplýsingunum, og þú sendir hann sjálf eða sjálfur. Vefurinn sjálfur geymir ekkert. Pósturinn berst í pósthólf okkar hjá [tölvupóstþjónusta, innan EES].

Fyrirspurn frá vinnustaðTilgangur: að svara þér og undirbúa tilboð. Grundvöllur: ráðstafanir að þinni beiðni áður en samningur er gerður, b-liður 1. mgr. 6. gr. Varðveisla: 12 mánuðir frá síðustu samskiptum. Ef af samningi verður gilda bókhaldslög um þau gögn sem þau ná til.
Áhugalisti einstaklingaTilgangur: að láta þig vita þegar aðstaða fyrir einstaklinga opnar. Grundvöllur: samþykki þitt, sem þú gefur með því að skrá þig og getur afturkallað hvenær sem er með einum tölvupósti. Varðveisla: þar til þú afskráir þig eða aðstaðan opnar, í mesta lagi 24 mánuðir.

Við sendum þér ekki markaðspóst nema þú hafir beðið um hann, og hvert slíkt bréf hefur afskráningarleið.

5. Það sem við gerum aldrei

  • Við seljum ekki, leigjum ekki og skiptum ekki á upplýsingum um þig.
  • Við tökum engar sjálfvirkar ákvarðanir um þig og gerum enga prófílun.
  • Upplýsingar um þig eru geymdar innan EES. Hýsingaraðilinn er evrópskt félag Google, bundið vinnslusamningi og stöðluðum samningsskilmálum ESB.

6. Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka vinnslu, fá þær fluttar, andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum og afturkalla samþykki án þess að það hafi áhrif á lögmæti fyrri vinnslu. Sendu póst á info@waveresilience.com og við svörum innan mánaðar. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.

7. Mælingar eru annað mál

Þessi stefna nær aðeins til vefsins og fyrirspurna sem berast um hann. Þátttakendur í mælingum fá sérstaka persónuverndartilkynningu og traustsskjal áður en þau eru beðin um samþykki, af því að mælingar fela í sér heilsufarsupplýsingar og lúta strangari reglum. Reglurnar sem gilda um þær eru raktar í kaflanum Hver sér hvað á forsíðunni.

8. Breytingar

Ef við breytum þessari stefnu efnislega uppfærum við útgáfunúmer og dagsetningu efst á síðunni. Eldri útgáfur eru geymdar og fást sendar sé þess óskað.

© 2026 PROENCY ehf., Ísland. WaveResilience er vinnuheiti. Forsíða